Leynivopn Hlauparans

Leynivopn Hlauparans

Vörur frá Ró hafa leynst í töskum hjá fjölmörgu íþróttafólki og þar á meðal fjölmörgum hlaupurum. 

Þuríður Elín Þórarinsdóttir er 38 ára gömul frá Sauðárkróki og byrjaði hún markvisst að hlaupa sumarið 2022. Hún er ein af þeim sem treystir á vörur frá Ró og sendi hún okkur sína upplifun á vörunum sem má lesa hér að neðan:

Mýkt 
Mýkt er algjör snilld til að koma í veg fyrir að fá nuddsár. Ég var gjörn á að fá nuddsár undan toppnum mínum og buxnastrengnum, en eftir að ég fór að bera mýkt á þessi svæði áður en ég fór að hlaupa þá hætti ég að fá nuddsár. Ég var ekki farin að nota mýkt þegar ég hljóp mina fyrstu 100 km í bakgarðinum haustið 2023 og ég fékk svo mikið af brunasárum að ég var bara aum í marga daga og að fara í sturtu eða pottinn næstu daga var bara vont! Ég bar svo mýkt á mig um vorið í bakgarðinum og ég fékk ekki eitt nuddsár! En ég bar mýkt á mig áður en hlaupið byrjaði og svo c.a. 2x yfir hlaupið, en ég kláraði 117 km. 

Kuldi
Þegar fór að líða á bakgarðshlaupið þá bar ég á kálfa og hné gelið kulda. Það hjálpaði til við að halda mér góðri og vann vel á verkjum.
Eftir þennan bakgarð, 117 km vorið 2024, þá fékk ég vondar blöðrur á tærnar og ég þurfti að hætta vegna verkja frá IT bandinu. Ég var í smá tíma að jafna mig eftir það hlaup en ég varð alveg góð um mitt sumar og hljóp svo aftur í bakgarðinum haust 2024 þar sem ég kláraði 24 hringi eða 100mílu (161km)! Þessu hefði ég samt ekki náð nema vegan KULDA, ég bar Kulda á mig á hverjum degi og nuddaði IT bandið og vá ég fann bara muninn og hvað kuldi gerði mikið fyrir mig, vil nánast fullyrða að ég hefði ekki verið orðin 100% svona snemma nema af því ég bar á mig kulda. 

Raki

Eitt sem ég gerði í tilraunaskyni og ég tel það hafa heppnast vel, var að c.a 2-3 vikum fyrir 100 mílu bakgarðinn byrjaði ég að bera raka kremið á fæturnar á mér á kvöldin fyrir svefn. Raki er mjög rakagefandi og mýkjandi krem og ég vildi trúa því að ef ég bæri þetta á mig þá væru minni lýkur á blöðrum. Og viti men ég fékk ekki eina blöðru eftir þessar 100 mílur! Nuddsár.. ég fékk smá nuddsár við náran en það var líka svæði þar sem ég gleymdi að bera mýkt á mig, en allstaðar sem mýkt fór á var ekki nuddsár. En eftir keppni bar ég rakakremið á nuddsárin og þau voru bara orðin góð eftir örfáa daga, þurfti ekki að kvíða því að fara í sturtu eða pottinn.

Aftur á bloggið